Algengar spurningar
Af hverju nafnið Dósaverksmiðjan?
Nafnið á fyrirtækinu er tengt Borgartúni 1 þar sem skólinn er var til húsa á árunum 2012-21. Þarna var einu sinni dósaverksmiðja. Dósir innihalda eitthvað sem við neytum eða hægt er að geyma lengi – svolítið eins og tungumál.
Hvaða námskeið eru í boði?
Í Dósaverksmiðjunni eru kennd Stig 1, 1AB, 2, 3, 4, 5, 6, 7 og 8 (A1-B2) samkvæmt námskrá í íslensku fyrir útlendinga. Einnig eru í boði talnámskeið – Tal A, Tal B, og Tal C, sem leggja áherslu á talþjálfun og uppbyggingu orðaforða í stað málfræði. Þá eru í boði undirbúningsnámskeið á forstigi A1 kennd út frá viðmiðum LASLLIAM. Þau námskeið heita Íslenska A, A2, B, C, D, E.
Ég veit ekki hvaða stig ég á að velja. Getið þið aðstoðað mig?
Nýir nemendur þurfa að koma í próf til þess að sjá til þess að rétt námskeið verði örugglega fyrir valinu. Námsmatið tekur u.þ.b. 20-30 mínútur og er skráning afgreidd að því loknu.
Ég er búin/nn að læra í öðrum skóla. Get ég farið beint á næsta stig hjá Dósaverksmiðjunni?
Skólar hafa mismunandi kröfur hvað varðar málfræði og talfærni. Markmið okkar er að nemendur læri sem mest og fái því námskeið við hæfi. Nýir nemendur þurfa því að koma í stöðumat áður en ákveðið er hvaða námskeið hentar best. Það skiptir okkur máli að nemendur læri íslensku, frekar en að fara upp námsþrepin án þess að ná viðeigandi hæfni.
Hvernig hjálpa stéttarfélög með námskeiðsgjöld?
Flest stærri stéttarélög bjóða upp á a.m.k. 75% endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum gegn framvísun kvittunar. Nemendur greiða sjálfir og fara með kvittun til stéttarélags til að sækja um námsstyrk. Við hvetjum nemendur til að hafa samband við sín stéttarfélög til að fá frekari upplýsingar um kröfur, þar sem reglur geta breyst.
Ég er atvinnulaus. Þarf ég að borga fyrir námskeið?
Nemendur sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun (VMST) eiga rétt á að fá tvö námskeið á ári greidd þaðan. Í því tilfelli er nóg að upplýsa skrifstofustarfsfólk um að viðkomandi sé á skrá hjá VMST og við höfum beint samband.
Ef búið er að nýta námskeiðakvóta er í einhverjum tilfellum hægt að fá endurgreiðslu gegn framvísun kvittunar, á sambærilegan hátt og hjá stéttarfélögum.
Um Tin Can Factory
Lærðu íslensku í skemmtilegu umhverfi.
Í Dósaverksmiðjunni er kennt á íslensku frá fyrsta stigi. Áhersla er á talþjálfun samhliða lærdómi svo nemendur þurfa að nota það sem þau læra í kennslustofunni. Nemendur fara í vettvangsferðir og elda einu sinni á námskeiði.
Um The Tin Can Factory – Mat og eftirlit
Dósaverksmiðjan starfar með framhaldsfræðsluleyfi frá menntamálaráðuneyti. Lög um framhaldsfræðslu eru hér.
Nám við Dósaverksmiðjuna gildir þegar sótt er um ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi.
Stjórnskipulag, viðhald á gæðamenningu innan stofnunar/fyrirtækis, námsumhverfi, kröfur til kennara, mat á árangri og framkvæmd fræðslu.
Fræðsluaðili tryggir að starfsfólk (þ.m.t. verktakar): taki þátt í gæðastarfi, viðhaldi gæðamenningu og njóti stuðnings við að skilja og nýta gæðaferlið.
Meðal viðmiða sem tengjast fræðsluaðila eru stjórnun matsferla, aðgerðir til úrbóta, breytingar á starfsemi og námsframboði sem byggð eru á endurgjöf frá námsmönnum og starfsfólki sem kemur að framkvæmd námskeiða. Mikilvægt er að gæðamenningu innan stofnunarinnar sé haldið við. Innri reglur um stjórnskipulag stofnunar miða að því að tryggja að mælikvarðar séu uppfylltir og að farið sé eftir viðmiðum um gæði. Þetta á einnig við um útnefningu stjórnanda sem ber ábyrgð á gæðaferlum og tryggir að mælikvarðar séu uppfylltir.
Námsmat er á ábyrgð Dósaverksmiðjunnar í formi kennslukönnunar sem nemendur fylla út í lok námskeiðs. Námsstjóri/verkefnastjóri námsins ber ábyrgð á því að fá niðurstöður námsmats, á úrvinnslu niðurstaðna, á sendingu þeirra til kennara og á því að fjalla um niðurstöður á námsmatsfundum sem haldnir eru í lok hvers námskeiðs. Samráðsferli hjá Dósaverksmiðjunni tryggir að allt starfsfólk er virkjað til að taka þátt í gæðaeftirliti og endurgjöf til stjórnenda. Dreginn er lærdómur af mati fyrri námskeiða þegar ný eru skipulögð og er þá m.a. horft til skipulagningar, á kennsluefni, aðstöðu og vali á leiðbeinendum.
Haldnir eru starfsmannafundir einu sinni í viku. Þar er fjallað um það sem viðkemur starfseminni eins og t.d. kennsluaðferðir, aðbúnað, efni, árangur, endurgjöf, nemendur og þau verkefni sem framundan eru. Ákveðin verkefni eru tímasett og verkefnalisti gerður og rifjað upp á hverjum starfsmannafundi þar sem starfsmenn eru upplýstir um framvindu mála. Þá er einnig fundað á sex vikna fresti hjá kvöldkennurum í vinnuviku og á fimm vikna fresti hjá dagkennurum, einnig í sk. vinnuviku þar sem engin kennsla er heldur á sér stað undirbúningsvinna, endurmenntun og fleira til að vinna með gæði náms og kennslu.
Allir kennarar vinna að þessu, einnig verktakar.
Gæðaeftirlit er á ábyrgð framkvæmdastjóra:
Gígja Svavarsdóttir
Sími: 790-7163
Netfang: gigja@skoli.eu